Við getum öll verið sammála um það
að seinasta blogg var nú bara eitthvað í ruglinu. en ég
ætla að bæta þetta og koma með betra blogg núna.
á þriðjudaginn þá fór þórunn í
verklega semsagt 21-03 og hún náði því viti menn, en ég held samt
að flest allir viti það. En það var rosalega rólegur dagur og
ekkert meira gerðist!
á miðvikudaginn kom hún elskan mín hún
Selma dröfn og Helga og Selma leyfði mér að keyra bílinn
sinn, og við keyrðum og keyrðum og keyrðum og fórum svo heim og
sofnuðum, enda þarf maður fegurðarblundinn sinn..
A fimmtudaginnn kom hin elskan mín sem
heitir Magnús og ég þurfti að fara í bæinn og svona , og fór að
vinna . og fór svo bara beint austur og já það gekk bara vel

A föstudaginn þá var ég nú bara að keyra
fram og tilbaka frá eyrabakka til selfoss, og ég fór í heimsókn til
hennar Tinnu og hildar systur fékk pizzu og svona , og auðvitað bað
hún Tinna systir mig um að passa eins og alltaf ,en ég gat það ekki
útaf því að maggi var loksins kominn í land og ég var DRIVER!!!
hehe ég hélt að það yrði langt þangað til að ég myndi segja
eitthvað svona ... haha EN viti menn hún þórunn fór til Selmu upp á
snæland og svo fór minns að dæla bensíni og ég ætlaði í bílalúgu
til að skipta 500 kalli því að hann var eitthvað krumpaður
seðillinn svo ég fór og ég var eitthvað að bakka og viti menn hvað
ég gerði ég BAKKAÐI A OLIS!!!!!!! enginn sá þetta thanks to god svo
ég brunaði í burtu með tárin í augunum
og fór og tók bensín og
svona og tékkaði hvort að það hefði komið eitthvað og það var já
RISPUR!!! og minns ætlar að borga þetta ef það á að gera við þetta
b.t.w ég var á Selmu D bíl. en hvað með það við fórum í þennan
bústað og svona og ætluðum síðan í bæinn að dettaí það þar en þá
fór maggi úr bænum og austur svo það var ekkert úrúrþví. en svo fór
ég heim til magga og ætlaði að fara sofa og svona búin að vera
keyra soldið lengi en nei þá fékk maggi þá hugdettu að fara suður
og stoppa í pulsuvagninum í leiðinni að fá okkur að borða, okey
ekkert mál svo fórum við í hvergerði og ætluðum aðtaka bensín en
NEI þá vildi ekki orkan taka við kortinu hans magga og við erum
aðtala um það að ÞAÐ VAR GEÐVEIKUR kuldi úti... en ókey svofórum
við á næstu og við vorum svona 10-15 mínuturu að taka bensín þar en
dælan var frosinn var eitthvað að stríða okkur svo við fórum á
ÞRIÐJU bensínsjoppuna og þar gekk allt að óskum , svo við brunuðum
bara suður og vorumkominn 5 um nóttina og fórum að sofa hálf
6.
á laugardeginum ég sótti krissu á skauta
og svona, ég og maggi tókum mynd á leigu og svo fór ástin mín á sjó
um kveldið og ég eyddi kvöldinu í að þrífa herbergið mittog horfa á
vídjó... því miður
á sunnudeginum þá var maður bara svona
heima að gera ekki neitt og maður fékk bílinn hans Adda lánaðann
(takk æðislega fyrir það addi minn), við vorum bara eitthvað að
rúnta og það voru eitthverjir gaurar að glenna typpið útum
gluggan... það var bara YAKK og voru að biðja okkur um að fara í
spyrnu og viti menn þeir báðu litlu systir mína um NR hjá
henni...!
á mánudeginum þá fórum við til tannlæknis
við systurnar og svona og ég get ekki andað þá fæ ég kul í
tennurnar og litla systir mín er bara STOKKBOLGINN í kjaftinum og
karen er með skakkar varir HAHA það er bara fyndið en ég nenni ekki
að blogga meira er aðpassa og svona... svo ég heyri í
ykkur
geislaundrakonan í brókunum þórunn
